7 Nóvember 2014 12:00

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Kópavogsbraut í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kópavogsbraut í austurátt, á móts við Kópavogsbraut 11. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 81  ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66. Við vöktun á sama stað sl. mánudag óku hlutfallslega fleiri of hratt, eða 11%, en þá var fylgst með ökutækjum sem var ekið Kópavogsbraut í vesturátt.

Vöktun lögreglunnar á Kópavogsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.