8 Maí 2018 08:54

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í suðurátt, við Drangakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.