30 Apríl 2019 16:04

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, við Drangakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var  á meðan hraðamælingunni stóð.