2 Maí 2011 12:00

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, að Drekakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 33 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 73%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið mjög hátt, eða 54-72% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið um 46 km/klst.