7 Maí 2012 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, við Drekakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 46 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 72. 

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.