4 Maí 2015 21:24

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, við Drekakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.