3 Maí 2016 17:39

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, við Drangakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51.

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.