4 Maí 2017 10:24

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Kóravegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kóraveg í vesturátt, við Drangakór. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 26 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 62%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Kóravegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.