11 Nóvember 2014 12:00

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, við Korpúlfsstaðaá. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 101 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83. 

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.