16 Júní 2015 17:06
Brot 25 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í austurátt, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.
Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.