9 Júní 2017 10:43

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í austurátt, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.