28 Maí 2018 16:02

Brot 24 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í austurátt, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 123 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.