30 Október 2018 10:25

Brot 51 ökumanns var myndað á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, við Korpúlfsstaðaá. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 131 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 39%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.