20 Janúar 2021 10:53

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, við Brúnastaði. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.