30 Júlí 2010 12:00

Brot 134 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, að Korpúlfsstaðaá. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 202 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 66%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og níu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 82.

Eftirlit lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.