9 Ágúst 2010 12:00

Brot 42 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, að Bakkastöðum. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 93 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Ellefu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Eftirlit lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi var tilkomið vegna ábendinga um hraðakstur á þessum stað.