7 Maí 2009 12:00

Fjörutíu og tveir voru staðnir að hraðakstri á Korpúlfsstaðavegi í Reykjavík í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 42 ökumanna mynduð á Korpúlfsstaðavegi en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í austurátt, við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 107 ökutæki þessa akstursleið og því óku 39% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Korpúlfsstaðavegi og þá óku 38% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða en þá var jafnmikil umferð um götuna (108 ökutæki). Meðalhraði hinna brotlegu í fyrra var 66 km/klst.