6 Nóvember 2007 12:00

Brot 37 ökumanna voru mynduð á Korpúlfsstaðavegi í Grafarvogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Korpúlfsstaðaveg í vesturátt, þ.e. á móts við Bakkastaði. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 116 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 64 km/klst. Þarna er 50 km hámarkshraði en sex óku á 70 km hraða eða meira. Sá sem hraðast ók var mældur á 77. 

Eftirlit lögreglunnar á Korpúlfsstaðavegi kom í kjölfar ábendinga frá aðilum sem láta sig umferðaröryggismál varða í hverfinu.