20 Janúar 2009 12:00

Brot 111 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, að Sigtúni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 506 ökutæki þessa akstursleið og því óku margir ökumenn, eða 22%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 98.