22 Maí 2009 12:00

Fimmtíu og tveir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Kringlumýrarbraut á þriðjudagskvöld en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar á þriðjudagskvöld eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 52 ökumanna mynduð á Kringlumýrarbraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, að Sigtúni. Á einni klukkustund, frá kl. 22.40 til 23.40, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því óku 31% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 77 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórtán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 94.