25 Apríl 2012 12:00

Brot 65 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, að Sigtúni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 484 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrír óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 89. 

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.