18 Janúar 2018 10:48

Brot 100 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.588 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Fimmtán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 107.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu,en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.