13 Mars 2018 17:08

Brot 157 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 1.631 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sextán óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 132.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.