12 Júní 2018 09:47

Brot 93 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 1.451 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Tíu óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað var á með hraðamælingunni stóð.