10 Maí 2019 10:51

Brot 133 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, að N1 Fossvogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.166 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 94 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Nítján óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 123.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.