18 Mars 2015 15:59

Brot 188 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, við frárein að Bústaðavegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 669 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tuttugu og átta óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.