9 Nóvember 2022 10:39

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, á móts við Sigtún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 625 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.