14 Nóvember 2016 12:18

Brot 111 ökumanna voru mynduð á Kringlumýrarbraut í Reykjavík á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í norðurátt, að göngubrú Fossvogi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 1.467 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.