10 Mars 2014 12:00

Brot 51 ökumanns var myndað á Kringlumýrarbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kringlumýrarbraut í suðurátt, á móts við Sigtún. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 577 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Kringlumýrarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.