10 September 2012 12:00

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í austurátt, gegnt Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 56%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Tíu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64. 

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað. 
 

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.