16 September 2014 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í vesturátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.