8 Mars 2022 13:03

Brot 6 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í vesturátt, á móts við Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 40 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 43.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.