21 September 2009 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Kristnibraut í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kristnibraut í vesturátt, gegnt Ingunnarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 76 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 59.

Vöktun lögreglunnar á Kristnibraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.