23 Júlí 2013 12:00

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, að Stuðlahálsi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 193 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.