2 Apríl 2014 12:00

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, að Stuðlahálsi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 144 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 71. 

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.