9 Febrúar 2015 15:50

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, á móts við Öskju bílaumboðið. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 104 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.