9 Nóvember 2018 14:32

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, að Stuðlahálsi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 141 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigningaskúrir voru á meðan hraðamælingunni stóð.