7 Júlí 2022 22:08

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í austurátt, að Bílabúð Benna. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 155 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 7%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.