13 Nóvember 2012 12:00

Brot 62 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, við bílaumboðið Öskju. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 181 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Átta óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 87.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.