7 Mars 2014 12:00

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krýsuvíkurveg í suðurátt, að Hraunhellu. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Krýsuvíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.