5 Mars 2015 15:19

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Krýsuvíkurvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krýsuvíkuveg í suðurátt, að Hraunhellu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 82 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 68 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Krýsuvíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.