4 Mars 2016 17:39

Brot 55 ökumanna voru mynduð á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krýsuvíkurveg í suðurátt, að Hraunhellu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 131 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 42%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Krýsuvíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.