14 Nóvember 2013 12:00

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Krýsuvíkurvegi í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krýsuvíkurveg í suðurátt, að Seltorgi í iðnaðarhverfinu á Völlunum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 72 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sjö óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Krýsuvíkurvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.