4 Maí 2022 16:08

Brot 30 ökumanna voru mynduð á Lambhagavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lambhagaveg í norðurátt, sunnan gatnamóta við Úlfarsfellsveg/Mímisbrunn. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 110 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Lambhagavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.