24 Febrúar 2023 11:51

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Lambhagavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lambhagaveg í norðurátt, á móts við Úlfarsfellsveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 138 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða  8%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 69.

Vöktun lögreglunnar á Lambhagavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.