26 Apríl 2016 12:45

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Lambhagavegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Lambhagaveg í suðurátt, á móts við Lambhaga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 54 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 80.

Vöktun lögreglunnar á Lambhagavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.