13 Maí 2019 16:31

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á móts við Langholtsveg 160. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 60 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 57%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.