26 Febrúar 2020 09:22

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, á móts við Langholtsveg 200. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því ók um þriðjungur ökumanna, eða 34%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.