1 Mars 2022 15:44

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, að Holtavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 177 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 55.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól, blautt og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.