19 Maí 2022 09:28

Brot 59 ökumanna voru mynduð á Langholtsvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Langholtsveg í suðurátt, við Langholtsveg 116. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 184 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar á Langholtsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.